Námskeið sem eflir sölu og þjónustuhæfni hjá þínu starfsfólki. Sölunámskeið er eitt af þeim námskeiðum sem þurfa alltaf að vera reglulega og minna á mikilvægi þess að efla söluhæfni starfsfólksins. 


Áður en námskeiðið hefst, er tekin könnun á starfsfólkið og metið hvernig hæfni og þekkingarþættir sem snúa að góðri söluhæfni koma út fyrir heildina og niður á einstaklinga.


Námskeiðið er sett saman miðað við niðurstöður heildarinnar en einnig einstaklinga svo að þjálfunin verður mun einstaklingsmiðaðri og getur hver starfsmaður unnið með þann hæfniþátt sem þarf að efla.


Á námskeiðinu er m.a. farið í eftirfarandi atriði:


  • Sjálfstraust
  • Fagmennska
  • Þarfagreining
  • Viðbótarsala
  • Að láta vaða
  • Sala er þjónusta
  • Einnig er farið í þá þættir sem koma slakast út í könnuninni 


Starfsfólki eru einnig sýndar niðurstöður rannsóknar þar sem gerð var tilraun á því hversu mikil sala tapast ef viðskiptavinum er ekki boðin varan, t.d má bjóða ykkur meira að drekka eða þess háttar.


Að námskeiðinu loknu er aftur tekin könnun til að sjá hvort þekking og hæfni í sölu hefur aukist og þá fær starfsfólk einnig upplýsingar um hvaða hæfniþætti það getur lagt áherslu á til að efla sig enn frekar. Hægt er að beintengja niðurstöður við námskeið innan eða utan fræðslukerfis hjá fyrirtækinu eða stofnuninni.


Einnig mælum við með að fyrirtæki fylgist með hvort að það verði aukning á sölu eftir að námskeiði lýkur og vinni að markmiðum með sínu starfsfólki.


Lengd námskeiðs 1.5 klst


Verð á námskeiði 120.000 kr. Verð á tengingu við námskeið innan eða utan kerfis ( fer eftir fjölda starfsmanna ) Innifalið í verði er hæfnikönnun fyrir og eftir námskeiðið sem og námskeiðið sjálft. Við minnum á að starfsmenntasjóðir styrkja námskeið fyrir fyrirtæki og stofnanir allt upp í 90% af heildarverði námskeiða.



Námskeiðið er kennt bæði á ensku og íslensku.

Hafðu samband

Share by: