FRÆÐSLUSTJÓRI

Okkar trú er að fræðslugreiningar eigi alltaf við, sama hvort að fyrirtækið sé stórt eða smátt. Betra er að fara sér hægar af stað og vita með vissu hvað það er sem starfsfólkið þarf og óskar eftir þegar kemur að fræðslu og þjálfun.


Einnig er vert að skoða hvað fyrirtækið eða stofnunin vill fá út úr því að efla þjálfun og fræðslu starfsmanna og hvaða fræðsluefni á í raun að fjárfesta í.

Effect bíður viðskipatavinum sínum upp á tvær leiðir við greininguna:


New Paragraph

Fræðslustjóri að láni

Verkefnið byggist á að lána mannauðsráðgjafa til fyrirtækja, sérhæfðum í vinnustaðafræðslu og óformlegri menntun. Ráðgjafinn fer yfir fræðslu- og þjálfunarmál fyrirtækisins, dregur fram það sem vel er gert, gerir eða dýpkar greiningu á þörfum fyrirtækisins og samhæfir við önnur námskeið eða viðurkenndar fræðsluleiðir innan óformlega fræðslukerfisins.



Eva Karen er einn af þeim ráðgjöfum á Íslandi sem er viðurkenndur fræðslustjóri að lánum hjá starfsmenntasjóðunum og hefur starfað sem slíkur síðan 2016.



NÁNAR

Fræðslustjóri að leigu

Fyrirtæki og stofnanir eru jafn misjöfn og þau eru mörg og af mörgum stærðargráðum. Ekki hafa allir vinnustaðir tök á því að vera með fræðslustjóra í fullu starfi en vilja samt hafa fræðslumálin í föstum skorðum og á ábyrgð fræðslustjóra með reynslu. Þá komum við hjá Effect sterk inn og verðum fræðslustjórar til leigu til lengri eða skemmri tíma.

Book Service

Starfsþróunaráætlun

Ef fyrirtæki og stofnanir kjósa ekki eða geta ekki farið í gegnum verkefnð Fræðslustjóri að láni þá geta fyrirtæki og stofnanir farið í gegnum greiningarferlið og innleiðingu á fræðslugreiningartólinu og sótt styrki vegna verkefnisins til fræðslusjóðanna vegna starfsþróunaráætlunar.

Share by: